laugardagur, október 02, 2010

Tropical storm Nicole

Þá er maður búinn að upplifa trópískan hitabeltisstorm.  Þrátt fyrir að Jamaica hafi sloppið afskaplega vel við hitabeltislægðirnar í ár og reyndar einnig seinasta ár þá skellti Nicole sér yfir hér í vikunni.  Reyndar var ástandið sýnu verra í suðrinu, sjá mynd hér að neðan frá Kingston, en hér fyrir norðan upplifðum við gríðarlegt vatnsveður.


Vissulega höfum við Íslendingar áður séð miklar rigningar og það oft í marga daga.  Munurinn liggur kannski í því að hérna er kerfið engan veginn tilbúið að taka við þessu vatnsmagni.  Vinna leggst algerlega niður og allt hreinlega lamast.  Við hér á vinnusvæðinu erum ekki tilbúnir í þennan slag en náttúruöflin eru ekkert að hafa fyrir því að spyrja okkur álits.  Þess má geta að aðalregntímabilið stendur frá sept-nóv og er okt sýnu verstur.  Sjáum hvað setur.